Allir folfvellir á Íslandi - á einu korti

Nýr í folfi? Byrjaðu hér

Folf (eða frisbígolf) er eins og golf, nema þú kastar disk í staðinn fyrir að slá bolta. Markmiðið er einfalt: koma disknum ofan í körfuna í sem fæstum köstum. Á Íslandi eru yfir 90 ókeypis vellir sem hægt er að spila allt árið um kring.

vellir
93

vellir

landshlutar
8

landshlutar

heilsársteigar
22

heilsársteigar

Hvað þarftu til að byrja?

Til að byrja að spila folf þarftu í raun bara einn disk, en við mælum með þremur: pútter fyrir stutt skot, miðlungsdisk (midrange) fyrir miðlungslöng köst og dræver (driver) fyrir lengri teighögg. Klæddu þig eftir veðri og veldu þægilega skó, því íslenska veðráttan getur breyst hratt.

Tegundir diska

Eins og í flestum íþróttum hefur búnaðurinn þróast í gegnum árin og fjölmörg fyrirtæki framleiða diska fyrir frisbígolf. Mismunandi diskar henta ólíkum aðstæðum, t.d. þegar fyrirstöður eru í skotlínunni eða í miklum vindi. Í grófum dráttum má skipta diskum í þrjá flokka: púttera, miðlungsdiska og drævera.

Pútterar eru hægustu diskarnir en jafnframt þeir nákvæmustu. Þannig er hægt að hitta körfuna af stuttu færi með mikilli nákvæmni, því þeir fara beint, þ.e. beygja hvorki til vinstri né hægri nema disknum sé hallað.

Miðlungsdiskar (midrange) eru notaðir í flest milliskot þar sem nákvæmnin skiptir meira máli en lengdin. Þessir diskar henta líka vel fyrir byrjendur og eru tilvaldir ef spilari á t.d. bara einn disk.

Dræverar (drivers) eru fyrir lengstu skotin og úrvalið er yfirleitt mest af þessum diskum. Hægt er að fá diska sem beygja mikið til hægri, aðra sem beygja mikið til vinstri og einnig diska sem fara mjög beint. Lengstu diskar geta flogið 150-200 metra hjá vönum kösturum.

Byggt á greininni Hvað er folf? á folf.is.

Hvar færðu diska

Diskar og búnaður fást víða um land, m.a. í íþróttavöruverslunum í Reykjavík, á Akureyri og víðar, sem og á netinu. Sérhæfðar folf-verslanir eru með mesta úrvalið, t.d. Frisbígolfbúðin, Folfdiskar og Folfarinn, og byrjendasett fást meðal annars í Elko. Ekki ofhugsa þetta, nældu þér í byrjendasett og prófaðu!

Leikreglur

Folf er spilað líkt og hefðbundið golf nema með frisbídiskum. Markmiðið er að kasta disknum í körfuna í sem fæstum skotum, og sá vinnur sem þarf fæst skot. Annað skot er tekið þar sem diskur lendir eftir fyrsta skot og sá gerir fyrst sem lengst er frá körfu.

Tillitssemi er stór hluti af leiknum. Það er sanngjarnt að mótspilari þinn fái að kasta án truflunar, því það sama myndir þú vilja. Ekki taka kast fyrr en þú ert viss um að flug disksins og lending trufli ekki hina spilarana.

Skot frá skotteigi verða að eiga sér stað á eða fyrir aftan ákveðna skotlínu. Ekki kasta fyrr en meðspilarar fyrir framan þig eru komnir úr skotfæri. Fyrstu upphafsskot eru tekin eftir fyrirfram ákveðinni röð, og eftir það fer röðin eftir skori síðustu brautar; sá spilari sem var með fæstu skotin tekur fyrstur upphafsskot.

Diska á ávallt að skilja eftir þar sem þeir liggja og ekki taka upp fyrr en skot er tekið. Það kostar nokkra æfingu að staðsetja fætur rétt þegar kastað er. Sá fótur sem þú setur þungann á í kastinu verður að vera eins nálægt skotstað og kostur er. Hann má aldrei fara yfir skotlínu og ekki meira en 30 cm fyrir aftan hana eða til hliðar. Hinn fóturinn má vera hvar sem er, svo fremi sem hann fari ekki nær körfunni en skotlínan er.

Leyfilegt er að fylgja eftir skoti með því að stíga yfir skotlínu eftir að kast er tekið, nema þegar púttað er, þ.e. innan 10 metra frá körfu. Ekki er leyfilegt að falla fram fyrir sig til að halda jafnvægi í pútti.

Ef diskurinn festist í tré eða runna í meira en 2 metra hæð er hann færður og settur á jörðina nákvæmlega fyrir neðan þann stað sem hann sat fastur, og kastað þaðan. Ef diskurinn lendir á stað sem ekki er hægt að kasta frá er hann færður út úr þeim aðstæðum (þó ekki nær körfu) og einu refsiskoti bætt við skorkortið.

Byggt á leikreglum folf.is.

Á vellinum

Bíddu eftir að hópurinn á undan hafi klárað brautina áður en þú kastar. Tíndu upp ruslið þitt og berðu virðingu fyrir umhverfinu, enda eru næstum allir vellir á Íslandi í almenningsgörðum. Þar sem braut liggur yfir göngustíg eða leikvöll skaltu víkja fyrir gangandi fólki, börnum og hundum. Ef þú rífur upp torfu, settu hana aftur á sinn stað, og virtu "lokað vegna varptíma" skilti á vorin.

Fyrstu vellirnir

Klambratún í miðborg Reykjavíkur er vinsælasti völlur landsins og frábær staður til að læra. Fossvogsdalur og Laugardalur eru sömuleiðis skemmtilegir og byrjendavænir. Þegar þú treystir þér í næsta skref eru 18 brauta vellirnir í Grafarholti, Gufunesi og á Selfossi næsti áfangastaður.