Um Folfvellir

Allir folfvellir á Íslandi á korti.

Folfvellir.is er gagnvirkt kort yfir alla folfvelli á Íslandi, á íslensku og ensku, hannað fyrir heimamenn og ferðamenn.

Sagan

Á bak við síðuna eru tveir tölvunarfræðingar og folfáhugamenn. Við höfum spilað í yfir tíu ár og lengi saknað þess að hafa gagnvirkt kort yfir alla folfvelli á Íslandi á einum stað. Svo við ákváðum að búa það til sjálfir í frítímanum. Okkur langaði í hraðan, símavænan kortavef sem hægt er að opna á bílastæði í Reykjavík og sjá strax hvaða völlur er næstur og skella sér! Við erum sífellt að vinna í viðbótum og bæta upplifun notenda, svo endilega látið okkur vita ef ykkur dettur eitthvað í hug. Við erum alltaf opnir fyrir hugmyndum.

Gögn og heimildir

Við merktum alla vellina sjálfir og fórum yfir staðsetningarnar, en einhver mistök gætu hafa slæðst með. Sérstakar þakkir fá folf.is, sem gáfu okkur leyfi til að nota myndirnar sínar af völlunum.

Hefurðu fundið villu?

Ef þú hefur séð villu eða ert með ábendingu, sendu okkur þá skilaboð á abendingar@folfvellir.is og við lögum það sem fyrst.

Hafa samband