Bolungarvík
Haustið 2015 var opnaður 9 körfu völlur í Bernódusarlundi og er völlurinn með 2 teiga á hverri braut. Í lundinum er skemmtilegt umhverfi með fjölbreyttum gróðri og trjám. Hæðamunur gerir völlinn krefjandi en kastað er bæði upp og niður halla sem þarna er. Á sumrin getur verið töluverð lúpína en þá er gott að taka vel eftir ef diskurinn lendir í henni.
- Brautir
- 9
- Erfiðleiki
- Miðlungs
Hnit eru áætluð - staðfestu áður en þú leggur af stað.